já það er svosem ekki margt að segja en ætla samt að reyna þar sem ég er að bíða eftir stelpuhitting og hef ekkert að gera...

ég fór norður með Ingu Björgu minni 11.-13. apríl og það var alveg gargandi snilld... fyrir utan smá beil og leiðindi... en maður gleymir því bara og heldur áfram..

nenni ekki að púkka uppá svona fólk.. bara láta það eiga sig..

svo fór ég aftur norður með Hrannari ástinni minni og vini hans. þeir voru að fara að keppa í þrekmeistaranum og lentu í 4. sæti sem er alveg ágætt sko..

og vá hvað það var GEÐVEIKT gaman á Dalvík á föstudagskvöldinu... væri til í að upplifa þetta aftur.. mætti samt alveg sleppa þessari gellu sem var alltaf að reyna að kyssa mig og rífa niðrum mig buxurnar og eitthvað.. en skemmtilegt þrátt fyrir það

fékk mér fræga hestaskotið aftur og viti menn.. engin æla..

ég var líka að selja bílinn minn..

yayyy

þvílík gleði.. maðurinn kom og skoðaði hann og sagðist svo hafa samband á morgun..

og auðvitað keypti hann bara þennan kagga daginn eftir.. þannig að núna á ég engan bíl..

eða jújú ég er alltaf á bílnum hans Hrannars

.. maður verður auðvitað að vera aðal gellan í bænum á sportara með topplúgu.. lætur ekki bjóða sér neitt minna..

SVO ER ÉG HÆTT Í ÞESSARI SJOPPU =)=)=) það er þvílík gleði..



loksins laus

en ég er að fara að vinna í emmessís í sumar og vona að það verði nú gaman

ADDA ER AÐ FARA AÐ KOMA HEIM EFTIR 9 DAGA



get ekki beðið..

loksins að verða að veruleika.. svo var ég líka að frétta að þær Erla og Sandra ætla að flytja suður yfir sumarið þannig að þetta verður bara gargandi snilld þetta sumar


get ekki beðið eftir að fá ykkur snúllur

en það leiðinlegasta á dagskrá er það að ég er að byrja í prófum...

ohhh nenni því svooo ekki... langar að vera úti og verða smá brún á meðan þessi sól er hérna..

btw það er geeeðveikt heitt úti þannig að ég sit bara úti á svölum í tölvunni

og er að kafna ..

loksins komið sumar

búin að bíða eftir þessu lengi..
ég á að fara að læra undir próf í dag þannig að þegar ég vaknaði þá tók ég allt til hérna heima og gerði allt fínt nema vaskaði ekki upp.. bara svona til að þegar ég á að vera læra þá sjái ég ekki hvað það vantar að ganga frá og svona ... ég er nefnilega með þessa áráttu fyrir því að þegar ég á að vera að læra þá finn ég alltaf eitthvað til að þrífa og eitthvað... ég er svooo vangefin...

þannig að já það er allt hreint hjá mér núna og þá er það ekki afsökun fyrir að vera ekki að læra...

ein bara að beita sig hörku hérna..

en ja ég er farin á stelpuhittinginn hjá Eyrúni minni